Eitt mannskæðasta lestarslys í sögu Indlands.

Líkt og visir.is greindi frá varð lestarslys í norður Indlandi í gær, við landamæri Nepal. Lestaslys eru ekki óalgeng í Indlandi en eru lestarslys yfir höfuð valdur um 25 þúsund dauðsfalla á ári hverju. Slysið sem um ræðir var fimmta mannskæðasta slys sem tengist lestum, á Indlandi. Í þessu tilviki voru 14 vagnar sem fóru útaf sporinu með hræðilegum afleiðingum en flestir sem létu lífið voru í fremstu tveimur vögnunum sem ultu þegar slysið varð. Ekki er enn búið að staðfesta orsök slyssins en miðillinn Times of India hefur gefið út að líklegast hafi slysið orðið vegna ónýtra lestarteina. Slysið varð klukkan 3 um nótt á staðartíma. 

Tala fjölda látinna hefur verið að hækka frá og með gærdeginum og mun hún líklega halda því áfram en björgunarmenn voru að í allan gærdag, við að bjarga slösuðuðum og fjarlægja látna úr vögnunum. Telegraph greindi frá því að tala látinna væri komin upp í 142 en þó er ekki búið að staðfesta endanlega tölu. Erfitt var fyrir björgunarmenn að athafna sig vegna þess hve illa farnir margir vagnanna voru eftir slysið en búið er að bera kennsl á um 110 manns sem létu lífið í slysinu. 

Líkt og kemur fram á Vísi er inverska lestarkerfið þriðja lengsta lestarkerfi heims og eru daglega um 22 milljónir manna sem fara um lestarkerfi Indlands. 


Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Landpósturinn áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Svæði

Landpóstur er fréttavefur
fjölmiðlafræðinema við Háskólann á Akureyri. 
KENNARAR OG UMSJÓNARMENN
Birgir Guðmundsson, Hjalti Þór Hreinsson, Sigrún Stefánsdóttir