Flýtilyklar
Harry Bretaprins kominn á fast
Harry Bretaprins hefur staðfest nýlega orðróma um samband sitt og bandarísku leikkonunnar Megan Markle, en þau hafa átt í ástarsambandi undanfarna mánuði. Þetta kom fram í ýfirlýsingu frá konungsfjölskyldunni í Bretlandi í dag.
Tilefni yfirlýsingarinnar ku hafa verið sú, að Megan Markle, og fjölskylda hennar hafa verið fyrir linnulausu áreiti fjölmiðla þar í landi, enda hafa sögusagnir af sambandi þeirra verið eitt helsta áhugamál slúðurblaða í landinu, en með yfirlýsingunni hvatti Harry fjölmiðla til þess að láta Megan og fjölskyldu hennar vera.
Megan Markle er hvað frægust fyrir leik sinn í þáttunum Suits, þar sem hún fer með eitt af lykilhlutverkunum, en hefur áður komið fyrir í ýmsum þáttum, en þar má nefna: CSI: Miami, Fringe og Castle.
Harry hafði á árum áður, gefið sér gott orð fyrir að vera kvennabósi og flippkisi, en hann vakti mikla athygli á sínum tíma bæði þegar hann var klæddur sem nasisti í búningapartíi, og þegar nektarmyndir af honum í Las Vegas birtust í slúðurblöðum í Bretlandi.
Ljóst er að mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan hann stóð í fyrrnefndum erindagjörðum, en blaðamenn Landpóstsins óska honum velfarnaðar á komandi árum.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir