Flýtilyklar
Íslendingar Evrópumeistarar í MMA
Bjarki Þór Pálsson og Sunna Rannveig Davíðsdóttir urðu bæði Evrópumeistarar áhugammanna í MMA í dag. Mótið var haldið í Birmingham í Bretlandi yfir helgina.
Sunna keppti við núverandi heimsmeistara, Anja Saxmark í úrslitaviðureigninni. Hafði Sunna betur með tæknilegu rothöggi í annarri lotu. En keppa þær í fjaðurvigt.
Stuttu seinna tryggði Bjarki sér Evrópumeistaratitilinn, þegar hann sigraði núverandi heimsmeistara, Búlgarann Dorian Dermendzhiev með einróma ákvörðun dómaranna. Þeir keppa í veltivigt sem er stærsti flokkur mótsins.
Ásamt þessum glæsilega árangri Sunnu og Bjarka þá vann Pétur Jóhannes Óskarsson brons í sínum flokki.
Þetta var í fyrsta skipti sem að Evrópumót var haldið í MMA. Það voru 180 keppendur skráðir frá 30 löndum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Landpósturinn áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir