Áhersla lögð á glæsileika og sérstöðu umbúða

 

Áhersla lögð á glæsileika og sérstöðu umbúða

 

 

Álfheiður Eva Óladóttir og Bylgja Bára Bragadóttir stofnuðu fyrirtækið MIA árið 2012 og eru þær með aðsetur í Mosfellsbæ. Árið 2013 vann fyrirtækið Frumkvöðlakeppni kvenna á vegum Íslandsbanka, FKA og Opna Háskólans um bestu viðskiptaáætlunina og hlaut veglegan styrk að lokum. Sápurnar hafa náð miklum vinsældum á Íslandi og má finna þær í flestum verslunum og apótekum. Nýr ilmur er væntanlegur frá Miana innan tíðar og er stefnan tekin á erlenda markaði.

 

Rík áhersla lögð á gæði sápunnar

Fyrirtækið MIA sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hreinlætisvörum til persónulegra nota og Miana handsápur er fyrsta vörulína fyrirtækisins. Vörulínan samanstendur af fjórum tegundum af froðusápum: Miana Vanilla, Miana Rauð epli, Miana Án ilmefna og Miana Eldhús. Miana án ilmefna er ætluð þeim sem vilja og/eða þurfa að nota handsápur án ilm- og aukaefna. Miana Eldhús er handsápa í eldhúsið.
Fyrirtækið hefur lagt ríka áherslu á gæði sápunnar í allri vöruþróun og einnig hefur verið lögð áhersla á glæsileika og sérstöðu umbúða.

 

 

Hugmyndin að Miana sápunum verður til

Við höfðum báðar gengið með þann draum í maganum að eignast okkar eigið fyrirtæki og svo fannst okkur líka svo rosalega gaman að vinna saman. Okkur hafði lengi fundist úrval af handsápum mjög einsleitt á íslenskum dagvörumarkaði og okkur fannst vanta góðar handsápur sem væru jafnframt í flottum umbúðum. Kviknaði þá hugmynd um hvort ekki væri hægt að framleiða spennandi handsápur sem væri hægt að nálgast í næstu matvöruverslun og væru þannig aðgengilegar neytendum.

 

Byggja á gömlum grunni

Sápurnar byggja á gömlum grunni heilsusápu sem hefur m.a. annars verið notuð á heilbrigðisstofnunum þar sem notkun er mikil og hreinlæti þarf að vera gott. Sápan er mild og inniheldur húðverndandi og húðmýkjandi efni sem næra húðina og styrkja náttúrulegar varnir hennar. Sápan er sótthreinsandi (antibacterial) og er án parbena og triclosan. MIA framleiðir sápurnar í samstarfi við Mjöll Frigg.

 

Erum að svara ákveðinni eftirspurn

Þetta hefur gengið fram úr okkar björtustu vonum og okkar upplifun er að við séum að svara ákveðinni eftirspurn sem hefur verið til staðar. Endursöluaðilar á Íslandi eru yfir 100 talsins og samanstanda af öllum helstu matvörukeðjum og apótekum landsins.

Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á vefsíðu Miana: www.miana.is og einnig á Facebook síðu: www.facebook.com/miana

 

 


Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Landpósturinn áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Svæði

Landpóstur er fréttavefur
fjölmiðlafræðinema við Háskólann á Akureyri. 
KENNARAR OG UMSJÓNARMENN
Birgir Guðmundsson, Hjalti Þór Hreinsson, Sigrún Stefánsdóttir