Flýtilyklar
Thora Karlsdóttir: "Ég endurfæðist sem kona"
Laugardaginn 24 október verður listakonan Thora Karlsdóttir með sýningu í Gallerý Forstofu, sem staðsett er í forstofunni á Lifandi Vinnustofu í Kaupvangsstræti 23. Frítt er inn á sýninguna og verður húsið opið á milli 14 – 17.
„Sýningin snýst um að gefa gestum tækifæri á að koma og skoða margvísleg listaverk og taka þátt í og spjalla um kjólagjörninginn minn sem nú stendur yfir. Svo gerist alltaf eitthvað óvænt og spennandi.“
Klæðir sig í nýjan kjól á hverjum morgni
„Mig langaði að ögra sjálfri mér, gera eitthvað endurtekið daglega í langan tíma. Eitthvað sem væri nánast ógerandi. Úr varð Kjólagjörningurinn. Hann er samsettur úr nokkrum hugmyndum og það eina sem ég ákvað þegar ég byrjaði var að vera í nýjum kjól á hverjum degi í 280 daga eða 40 vikur, einskonar kjólameðganga.“
„Ég átti að verða strákur þegar ég fæddist, en ég var stelpa, þá sagði systir mín að ég ætti að heita strákur. Þetta hef ég fengið að heyra þúsund sinnum. Í dag er ég í kjól númer 235. Á hverjum morgni klæði ég mig í nýjan kjól, klæðist honum allan daginn og getur það oft verið áskorun og tekið á, þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir. Þetta hefur gengið ótrúlega vel og eftir 45 kjóladaga endurfæðist ég sem kona, myndlistakonan Thora. Sagan endurskrifuð PUNKTUR.“
Uppskeran verður sýnd í september 2016 í Ketilhúsinu. Það verður innsetning af öllum 280 kjólunum ásamt myndum en kærasti Thoru, Björn Jónsson, hefur tekið kjólamyndir af henni daglega síðan gjörningurinn byrjaði. Thora stefnir á að gefa út bók í sambandi við kjólagjörninginn.
„Það er gaman að bregða stundum á leik með réttu fylgihlutunum. Var næstum því búin að fótbrjóta mig á þessum skóm en hvað gerir maður ekki fyrir listina.“
Innblástur úr barnæsku
Thora útskrifaðist árið 2013 úr Europaische Kunstakademie of fine art og hefur síðan þá unnið í fullu starfi sem myndlistakona. Þar áður var hún með vinnustofu í Luxembourg í mörg ár. Það hefur verið nóg að gera hjá henni í allskyns sýningum, bæði á sam – og einkasýningum. Hún vinnur nú einnig í hlutastarfi sem list og handverksleiðbeinandi í Punktinum handverksmiðstöð.
„Mér líkar rosalega vel að vinna þar, það er skapandi og lifandi starf á gamla vinnustað föður míns Kalla Hjalta sem var handavinnukennari í gamla Barnaskóla Akureyrar. Þannig að ég ólst upp á smíðastofunni sem tilheyrir í dag vinnustaðnum mínum.“
Thora segist meðal annars leita í minningar frá barnæskunni hérna á Akureyri sem innblástur í verkin sín, en hún er nýflutt aftur norður eftir 30 ára fjarveru. „Ég fjalla mikið um tilfinningar, fólk og upplifanir. þetta gerist allt að sjálfu sér og að lokum svona smellur bara eins og hver önnur uppljómun.“
Nóg um að vera framundan
Nóg er um að vera framundan hjá Thoru og má þar nefna kjólagjörninginn daglega til 30 nóvember og segist hún hlakka mikið til að fara í gallabuxurnar sínar aftur!
Í desember verður svo samsýningin „Bjart er yfir“ í Gallerí Mjólkurbúðin á Akureyri og í lok mars 2016 verður samsýning á vegum Culture ministre de Luxembourg í Gallery biem Engel í Luxembourg. Og svo auðvitað sýningin Kjólagjörningurinn í Ketilhúsinu í september á næsta ári.
Hér er Thora í einum af 280 kjólunum við sín daglegu verk.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir