Ætti að banna hárlengingar

Samkvæmt stórum hópi hárvísindamanna í Bretlandi ætti að banna hárlengingar. Í Bretlandi bjóða fleiri og fleiri hárgreiðslustofur upp á ódýrar hárlengingar og gera það þrátt fyrir að starfsfólk stofanna hafi ekki reynsluna til að setja þær rétt í.
Hárvísindamennirnir segja að þetta valdi því að æ fleiri ungar konur þjáist af ýmiskonar ótímabærum hárvandamálum t.d. hárlosi og skallablettum. Hárvísindamaðurinn Barry Stevens fer fyrir hóp sem hefur rannsakað afleiðingar hárlenginga og segir að það geti haft alvarlegar afleiðingar að vera með hárlengingar lengi í einu. Þær geti hreint út sagt valdið varanlegum skemmdum á hári fólks.
Bandarískir og Ítalskir vísindamenn eru sammála og segja vandamál sem tengjast hárlengingum mun algengari en skráð tilfelli segja til um. Stundum virðist sem svo að konur eigi ekki við neitt vandamál að stríða en við nánari athugun sjáist að hársvörðurinn sé ekki í lagi.
Barry Stevens hefur komið á ráðgjöf til að hjálpa konum sem hafa farið í mál eftir að hár þeirra eyðilagðist í kjölfar hárlenginga. Eftir rannsóknir í mörg ár hefur hann komist að þeirri niðurstöðu að það ætti að banna hárlengingar sem eru saumaðar, límdar eða festar með málmhringjum í hársvörðinn.
KBS.


