Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Albert fær styttu

Albert var svo sannarlega konungur vallarins
Albert var svo sannarlega konungur vallarins

Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að reisa styttu af fyrrverandi formanni félagsins, Alberti Guðmundssyni, í Laugardalnum nú um helgina. Albert var einnig fyrsti atvinnumaður Íslands í knattspyrnu.

„Þetta er æðislegt!“ segir Thelma Dögg Ingadóttir, barnabarn Alberts, í samtali við Landpóstinn. „Við erum öll mjög spennt fyrir þessu.“

Albert spilaði með Val hér á Íslandi í æsku og fór svo fljótlega að spila með íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Hann skoraði fyrstu tvö mörkin í leik Íslands gegn Norðmönnum 1947 en sá leikur fór 2-4 Norðmönnum í vil.

Albert fluttist til Skotlands árið 1944 og spilaði þar með Rangers en eftir stutt stopp þar fór hann að spila með Arsenal í Englandi.

Árið 1946 flutti hann sig yfir til Nancy í Frakklandi þar sem hann gat ekki fengið atvinnuleyfi í Englandi. Þar var hann markahrókur liðsins fyrstu leiktíð sína og skoraði tvö mörk í hverjum bikarleik.

Albert spilaði þá stutt með AC Milan þar til hann hnébrotnaði og keypti sig undan samningi. Eftir að hafa náð fullum bata á hnéi lagði hann skóna á hilluna árið 1954.

Árið 1967 hlaut hann Silfurmerki KSÍ fyrir starf sitt í knattspyrnu og varð þá formaður KSÍ frá 1968. Þegar hann lét frá störfum árið 1973 fékk hann Gullmerki félagsins fyrir langvarandi og þýðingarmikil störf hans að knattspyrnu.

Styttan af Alberti verður afhjúpuð í Laugardalnum í kvöld kl. 18:30.



Mynd augnabliksins

._img_8655.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 12
Samtals: 174394

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning