Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Andlitsbókin ógurlega

Ég ætla að fjalla lítillega um fyrirbæri sem er orðið ótrúlega fyrirferðarmikið í lífi margra Íslendinga. Þetta fyrirbæri er risastórt, þótt ég reyndar sitji með það á lærunum eins og er. Fyrirbærið er einstaklega tímafrekt, þótt það í sjálfu sér krefjist einskis af manni. Fyrirbærið er enn fremur orðið mín helsta leið til að hafa samskipti við fólkið í kringum mig, hvort sem það er nú gott eða slæmt.

Fyrirbærið mun vera Facebook.


Þegar ég í sakleysi mínu skráði mig inn á þennan undarlega vef (í þeim tilgangi að halda sambandi við norska vini), fyrir um tveimur og hálfu ári síðan, hafði ég ekki hugmynd um að ég hefði rétt í því stigið inn um dyrnar að þessu ógurlega fyrirbæri. Ekki leið þó á löngu áður en ég fór að átta mig á hlutunum.

Þótt ekki séu nema um tvö og hálft ár síðan, hefur andlitsbókin breyst mikið á þessum tíma. Eins og kannski önnur afkvæmi 21. aldarinnar þróast hún á ógnarhraða - og ég, sem er jú fædd á 20. öldinni, þarf að leggja mig alla fram til þess eins að fylgja henni eftir. Til að byrja með voru allir facebook-vinir mínir norskir. Andlitsbókin náði nefnilega yfirráðum yfir Norðmönnum löngu áður en hún gleypti okkur Íslendingana. En svo fór að fjölga í hópnum, nokkrir bekkjarfélagar bættust í hópinn, nokkrir af vinum mínum á Akureyri og svo framvegis. Nú er svo komið að nánast hvert einasta mannsbarn, sem er komið á fermingaraldurinn, á aðgang að þessu ógurlega skrímsli. Hver veit, kannski er það manndómsvígsla barna í dag, að eignast facebook-aðgang. Hvað varð um það að fermingin kæmi fólki í fullorðinna manna tölu?

Andlitsbókin, eða Snjáldurskinna eins og sumir vilja kalla hana, er einstaklega vanabindandi. Hún leggur saklaust fólk undir sig, og eftir einungis nokkra daga verður margur sómamaðurinn háður. Jafnvel hörðustu andstæðingar hennar verða að láta í minni pokann og játa sig sigraða. Enn eru þó eftir nokkrar sálir úti í hinum stóra heimi, sem Andlitsbókin hefur ekki enn náð tökum á. Þetta fólk er oft mjög stolt af þeirri sérstöðu sinni, enda ber það með eindæmum gott merki um sterkan viljastyrk, nú eða þrjósku.

Nú er ég algerlega forfallinn þræll andlitsbókarinnar. Allar mínar myndir rata þangað inn og ég gleðst yfir þeim athugasemdum sem vinir mínir skrifa um myndirnar. Ég gleðst þegar ég sé litla rauða merkið birtast uppi í vinstra horninu, merkið sem sýnir að nú sé líf í bókinni. Ef merkið reynist vera tilkynning um komment eða eitthvað álíka spennandi, gleðst litla hjartað mitt. Ef merkið reynist hinsvegar vera leiðinda tilkynning frá einni af óteljandi óþarfa "applications" verð ég fyrir vonbrigðum, en held þó ótrauð áfram.

Þótt þessi pistill beri kannski vott um neikvæðni, jafnvel háð, er bókin góða ýmsum kostum prýdd. Öðruvísi hefði hún varla náð þeim vinsældum sem raun ber vitni um. Ég hef sjaldan vitað betri leið til að leita uppi gamla vini, og má þá jafnvel reyna að tjasla saman löngu slitnuðum vinaböndum. Myndirnar og athugasemdirnar sem þeim fylgja, eru líka með eindæmum góð afþreying. Og vegna ótrúlegra umsvifa bókarinnar, efast ég um að fljótlegri samskiptaleið finnist, að því gefnu að manneskjan sem þú vilt ná á sé ekki stödd í sama herbergi og þú.

Á þeim stutta tíma sem fór í að skrifa þessar línur, hafa ófáir tölvupóstar borist mér frá Snjáldurskinnu. Ég hef fengið skilaboð frá vinum og ættingjum, eignast nýja vini og unnið fótboltaleik, svo dæmi séu tekin. Ég hef fengið skilaboð sem segja mér hvar ég eigi að mæta á djammið um næstu helgi, séð hvaða bækur vinir mínir lesa, hvernig bóndabæjum þeirra gangi, lýsingar á gærkvöldinu, gleði og sorg.

Að þessu sögðu lýk ég skrifum um vinkonu mína Andlitsbókina. Við höfum átt góðar stundir saman í gegnum tíðina, og þeim mun án efa fjölga eftir því sem vikurnar og mánuðirnir líða.


- Herdís Helgadóttir



Mynd augnabliksins

._img_8676.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning