Andrea Hjálmsdóttir hjólar í Baldvin H.
Almennt - föstudagur 05.febrúar 2010 15:07 - Björn Jónas Þorláksson - Lestrar 57 - Athugasemdir (0)

Andrea Hjálms hjólar í Baldvin H.
Mikil spenna er meðal vinstri grænna á Akureyrar vegna forvalsins sem fram fer á morgun.
Baldvin H. Sigurðsson sem kom eins og þruma úr heiðskýru lofti og náði sem nýr frambjóðandi nokkuð óvænt fyrsta sætinu fyrir fjórum árum fær nú sputnik-mótframboð í fyrsta sætið. Andrea Hjálmsdóttir kennari við HA vill leiða listann og fylgir henni Edward Huijbens fast á eftir í baráttu um annað sætið. Alls verður valið í sex efstu sætin að teknu tilliti til reglna um fléttulista og fleira. Aðeins flokksbundnir VG-menn hafa kjörrétt á morgun og hefur fjölgað um einhver hundruð á síðustu vikum skv. heimildum Landpóstsins.

