Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Auðveldur sigur á Rússum

Íslendingar sigruðu Rússa örugglega. (mynd/mbl.is)
Íslendingar sigruðu Rússa örugglega. (mynd/mbl.is)

Íslendingar sigruðu Rússa auðveldlega í öðrum leik sínum í milliriðli á EM í handbolta í dag. Leikurinn var aldrei spennandi og endaði með öruggum sigri Íslendinga 38-30, en staðan í hálfleik var 19-10 íslenska liðinu í vil. Íslendingar eru sem stendur í efsta sæti milliriðilsins með 6 stig en Króatar geta komist upp fyrir þá sigri þeir Austurríki seinni í dag.

Rússar voru fyrir leikinn neðstir í milliriðlinum og áttu ekki möguleika á að spila um sæti á mótinu. Það sást vel á leik rússneska liðsins að leikurinn skipti þá ekki miklu máli og þeir virkuðu mjög áhugalausir. Íslendingar voru betri aðilar strax frá fyrstu mínútu og juku forystuna jafnt og þétt án þess að hafa mikið fyrir því. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins, náði að hvíla nokkra lykilmenn með því að spila á mönnum sem höfðu lítið spilað á mótinu. Íslendingar náðu upp góðri forystu í fyrri hálfleik og héldu henni til leiksloka. Lokatölur 38-30 og var sigurinn aldrei í hættu.

Markahæstir í íslenska liðinu voru þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Alexander Peterson með 7 mörk hvor og næstur kom Sturla Ásgeirsson með 5 mörk. Björgvin Páll Gústavsson stóð vel í markinu og varði 11 skot. Hreiðar Leví Guðmundsson kom inn á síðustu 10 mín og varði 1 skot.

Næsti leikur Íslendinga er gegn Noregi á fimmtudaginn kl. 15. Þá ræðst hvort að liðið kemst í undanúrslit.

vev.



Mynd augnabliksins

img_8689.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning