Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Björninn hafði betur í vítakeppni

Hörð barátta um Íslandsmeistaratitilinn
Hörð barátta um Íslandsmeistaratitilinn

Björninn náði í dag 2:1 forystu í úrslitaeinvíginu við SA um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkíi karla með sigri í þriðja leiknum, 4:2, eftir vítakeppni. Snorri Sigurbergsson markvörður Bjarnarins varði öll fjögur víti SA. 

Björninn vann fyrsta leik liðanna 4:1 en SA svaraði um hæl með 7:4 sigri á föstudaginn. Liðin mætast fjórða sinni í Egilshöllinni á morgun.

Daði Örn Heimisson kom Birninum yfir á 6. mínútu en fyrirliði norðanmanna,Jón B. Gíslason, jafnaði metin í 1:1 með marki á 13. mínútu. Þannig var staðan eftir 1. leikhluta.

Hvorugt liðanna bætti við marki í 2. leikhluta en mikið var um baráttu. 

Bergur Árni Einarsson náði forystunni á nýjan leik fyrir Björninn á 6. mínútu þriðja leikhluta en Jóhann Leifsson svaraði að bragði fyrir SA tveimur mínútum síðar. Bjarnarmenn fengu svo víti þegar tæpar tvær mínútu voru til leiksloka en skot Gunnars Guðmundssonar fyrirliða var varið. Ekki voru fleiri mörk skoruð í venjulegum leiktíma og því var gripið til framlengingar.

Hvorugu liðinu tókst að skora gullmark í framlengingunni og því tók vítakeppni við.

Vítakeppnin:

Jón Gíslason tók fyrsta vítið en skot hans var varið.

Einar Sveinn Guðnason skoraði af öryggi úr fyrsta víti Bjarnarins.

Rúnar Rúnarsson tók annað víti SA en skotið var varið.

Brynjar Freyr Þórðarson skaut framhjá.

Steinar Grettisson átti skot sem var varið.

Ólafur Hrafn Björnsson skoraði glæsilegt mark.

Jóhann Már Leifsson átti skot sem var varið.



Mynd augnabliksins

pict4027.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning