Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Dagskrá helgarinnar

Akureyri
Akureyri
Það er margt áhugavert og fjölbreytilegt að gerast um helgina hér á Akureyri og í nágrenni.



Á föstudagskvöldið og laugardagskvöldið þá ætlar hljómsveitin Von að vera með ball í Vélsmiðjunni og á laugardagskvöldið þá ætlar Björgvin Halldórsson að slást í för með þeim og ætla þeir að halda uppi stuðinu fram á rauða nótt verður frítt inn til miðnættis en eftir það kostar 1500 kr.

Á 101 Akureyri á föstudaginn þá verður Dj Pétur Sveins og verður frítt inn. Á laugardagskvöldið þá verða Maggi og Meissdarrinn og kostar 500 kr inn. 

Á Græna Hattinum verða Ljótu Hálfvitarnir bæði á föstudags- og laugardagskveldið og er forsöluverð 1500 kr.

Sjallinn verður með Júrópartý á laugardagskvöldið, þar sem að Hvanndalsbræður ætla að koma og halda uppi fjörinu eins og þeim einum er lagið eftir úrslitaþáttinn miðaverðið er 1500 kr .


Á laugardaginn þá verður opnuð sýning á minjagripum og nytjaverkum nemenda í safnarhúsinu á Húsavík. Og ekki skemmir það nú fyrir að það er frítt inn svo það er hægt að fá sér góðan laugardagsrúnt til Húsavíkur og sjá afraksturinn sem að nemendur Myndlistaskólans á Akureyri og hópsins þingeyskt og þjóðlegt hafa gert.


Ef að maður vill styrkja gott málefni þá verður risa bingó í Brekkuskóla á sunnudaginn kl 13:00 til styrktar lanveikum ungmennum, þar sem að heildarverðmæti vinninganna eru yfir 200.000 kr.



Mynd augnabliksins

img_4640.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning