Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Dramatík í Íslendingaslagnum

Aron Einar Gunnarsson í leik með Coventry.
Aron Einar Gunnarsson í leik með Coventry.
Íslendingaliðin Coventry og Portsmouth mættust í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi. Þetta var endurtekinn leikur vegna þess að fyrri leikur liðanna endaði með jafntefli. Portsmouth sigraði leikinn, 1-2, en sigurmarkið kom í uppbótartíma í seinni hálfleik framlendingar, en staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1. Coventry komst yfir með glæsilegu marki Leon Best á 33. mín, en jöfnunarmark Portsmouth kom í uppbótartíma þegar Stephen Wright, fyrirliði Coventry, skoraði sjálfsmark. Portsmouth voru betri í framlengingunni en náðu þó ekki að skora. Það stefndi allt í það að úrslitin myndu ráðast í vítaspyrnukeppni en Aaron Mokoena skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu.
Þeir Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth, og Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Coventry, léku báðir allan tímann fyrir sitt lið og stóðu sig mjög vel.
vev.


Mynd augnabliksins

p9301028.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning