Opið hús í skautahöllinni
Þeir sem mæta fá að prófa spila leiki og fá góða leiðsögn, í fréttatilkynningu á www.sasport.is/krulla kemur fram að fólk sem mæti þurfi að vera undir það búið að falla fyrir íþróttinni og þar af leiðandi fara að æfa hana. Æfingar eru reglulega í skautahöllinni og eru þær á mánudags- og miðvikudagskvöldum. Þeir sem hafa áhuga á íþróttinni geta mætt þessi kvöld og spilað á lausum brautum eða bara fylgst með hinum spila.
Um þessar mundir stendur íslandsmótið sem hæst og er fjórum umferðum ólokið og því er hörð barátta um hvaða fjögur lið fara í úrslitin. Næsta umferð í mótinu er 8. mars og síðan er það 10. 15. 17. og 22. mars en úrslitakeppnin sjálf verður svo 26. og 27. mars. Þeir sem hafa áhuga á íþróttinni geta kynnt sér hana hér.


