Græni Hatturinn fer hvergi

Haukur Tryggvason, vert á Græna Hattinum á Akureyri sendi í dag tilkynningu á fésbókinni til allra þeirra sem höfðu skráð
sig í hópinn ,,Lifi Græni!” honum til stuðnings.
Haukur þakkar þar stuðninginn og segir frá því að samkomulag hafi náðst á milli hans og Sigmundar, eigenda hússins.
Haukur segist muni halda áfram rekstri Græna Hattsins í óbreyttri mynd, en við muni bætast nýr vínbar sem opna mun í vor og verði innangengt milli staðanna.
Græni Hatturinn er staðsettur í miðbænum á neðri hæð Bláu Könnunnar og hefur skapað sér nafn um land allt sem góður tónleikastaður.
-Karen
Mynd tekin af vef Akureyrarbæjar.


