Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Gran Torino

Eastwood er í fanta formi í kvikmyndinni Gran Torino
Eastwood er í fanta formi í kvikmyndinni Gran Torino
Nú um helgina tóku Sambíóin kvikmyndina Gran Torino til sýninga. Myndin skartar Clint Eastwood í aðalhlutverki og er þetta jafnframt hans síðasta hlutverk í kvikmynd að eigin sögn.  Kvikmyndin hefst þegar fyrrum bandarískur hermaður að nafni Walt Kowalski (Eastwood) er að syrgja konu sína. Hann flutti aftur heim eftir að hafa barist í Kóreustríðinu en verður fyrir vonbrigðum með gamla hverfið sitt í Michigan þar sem klíkur ráða völdum og innflytjendur hafa nánast tekið yfir hverfið.  Hann vill þvi engin afskipti hafa af nágrönnum sínum og fyrirlítur þá flesta. Þegar líður á kvikmyndina kynnist hann þó suður Asískum systkinum sem búa við hliðina á honum sem gerir það að verkum að hann kynnist siðum og menningu þeirra. Þegar klíka af sama kynþætti (Hmong) reynir að gera þeim lífið leitt tekur Walt málin í sínar hendur til þess að bjarga systkinunum, fjölskyldu þeirra og bjarga gamla hverfinu sínu. Gran Torino fékk mjög góða dóma ytra þegar hún kom út og að mínu mati er hún nokkuð vel að þeim komin. Hún hefur þó nokkra galla og ber þar helst að nefna leikframmistöðuna hjá systkinunum og klíkumeðlimunum sem á köflum virkar nokkuð tilgerðarleg. Eastwood hins vegar hefur engu gleymt og svipar þessu hlutverki nokkuð til gamla góða Dirty Harry sem hann lék svo eftirminnilega. Þá er ekki hjá því komist að sá grunur renni að mér að Eastwood hafi eitthvað haft að segja með handritið þar sem þessi mynd er mjög svipuð og síðustu myndir sem Easwood hefur leikstýrt en líkt og Million Dollar Baby og Changelling er Gran Torino nokkuð hæg og róleg í uppbyggingunni og einbeitir sér frekar að sögu og persónusköpun kvikmyndarinnar heldur en hraða, spennu og tæknibrellum. Yfir heildina er Gran Torino eðal kvikmynd sem snertir áhorfandann og boðskapur kvikmyndarinnar, að maður getur fundið vinskap þar sem maður á síst von á honum, er mjög svo hugljúfur.


Mynd augnabliksins

img_8673.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning