Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Heilsugæslan

Heilsugæslan
Heilsugæslan

Á morgun, miðvikudaginn 20. janúar stendur Græni hatturinn fyrir sýningu á gamanleiknum Heilsugæslan. Kómedíuleikhúsið sér um þessa sýningu sem hefur notið mikillar vinsældar síðan sýningar hófust í október, þetta vinsæla leikrit hefur verið sýnt 30 sinnum og í flestum tilfellum hefur verið uppselt á sýninguna.

Heilsugæslunni er lýst sem hápólitísku leikriti, umfjöllunarefnið er íslenska þjóðfélagið og má þar nefna t.d. niðurskurð í kerfinu. Má því segja að leikritið snerti okkur öll á einhvern hátt.
Það var Lýður Árnason læknir sem samdi gamanleikinn og gefur áhorfendum sýn inn í völdundarhúsið og hvað er að gerast bak við tjöldin.

Kynningin um leikritið: Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum?

Leikararnir Elfar Logi Hannesson og Margrét Sverrisdóttir fara með öll hlutverkin í sýningunni sem tekur um klukkustund. Miðaverðið er 1900 kr og hvetur Landpósturinn lesendur sína til að fara á þessa frumlegu og skemmtilegu sýningu.  

Ester Ósk Árnadóttir. 



Mynd augnabliksins

img_8671.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning