Húðflúrun á Akureyri

Hreinn Logi Gunnarsson hefur verið að fikta við húðflúrun í vetur á Akureyri. Þó er þetta eingöngu áhugamál í augnablikinu og á ábyrgð fórnarlambs.
Auðvelt er að verða sér út um húðflúrunarverkfæri í dag en Hreinn, betur þekktur sem Hreinsi, pantaði sér þau af netinu. Hann hafði lengi velt fyrir sér hvernig væri að vera hinumegin við nálina. Til að byrja með æfði hann sig á appelsínum en fljótlega langaði hann til að prófa alvöru húð. Fyrsta fórnarlambið varð því hann sjálfur. Hins vegar hefur honum tekist að æfa sig aðeins betur með hjálp duglegra vina og hefur gert fimm húðflúr í dag og stefnir lengra.


