Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Hurðirnar skrúfaðar aftur

Sjallinn á sínum betri dögum
Sjallinn á sínum betri dögum
“Öryggi gesta var verulega ógnað” segir í frétt sem finna má á www.ruv.is  þar sem lýst er ástandinu í Sjallanum á laugardagskvöldið þegar eldur kom upp á meðan eldgleypir var með skemmtiatriði. Þegar sjúkraflutningamenn komu að og ætluðu að flytja manninn burt kom í ljós að neyðarútgangur var læstur og búið var að skrúfa hurðina fasta, þar að auki var slæmt aðgengi að öðrum neyðarútgöngum hússins.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sjallinn kemur við sögu í slíkum fréttum en vitað er um 25 tilfelli þar sem athugasemdir hafa verið gerðar við eldvarnirnar í húsinu á síðustu árum. Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar var kallaður til og kveðst hann hafa farið yfir hin ýmsu brot sem mátti finna á öryggisreglum skemmtistaðarins. Til eru skýrslur um slæmar brunavarnir í húsinu, áminningar og ítrekanir hafa verið sendar til rekstraraðila Sjallans en þeim hefur ekki verið svarað og ekkert gert í málunum.

Sjallinn er einn elsti skemmtistaður Akureyrar og hefur verið starfræktur frá 1963 en hann var tekin talsvert í gegn árið 2002.  Þar fara fram fegurðasamkeppnir, böll, tónleikar, árhátíðir og jafnvel stöku grímuball og brúðkaup. Þessi ástsæli skemmtistaður geymir minningar margra Íslendinga sem átt hafa leið um dansgólfið þar en verður að viðurkennast að kannski hafi hann nú munað sinn fífil fegurri þó fólk láti það ekki á sig fá og lendi annað slagið í því enn þann dag í dag að vera “alveg á Sjallanum”. 



Mynd augnabliksins

img_8656.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning