Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Níu ára mamma

Níu ára kínversk stúlka varð á dögunum yngsta móðir heims þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn.

Í Kína gilda mjög strangar reglur um að börn og unglingar byrji að stunda kynlíf of snemma og er kynlíf með einstaklingum undir 14 ára aldri skilgreint með lögum sem nauðgun. Yfirvöld í Kína eru nú með herferð gegn kynlífi ungra barna og unglinga og er meðal annars bannað að fjalla um kynlíf á netinu. Þá er unglingum vikið úr skóla séu þeir grunaðir um að vera í kynferðislegu sambandi.

Þessi herferð hefur verið gagnrýnd harðlega og er talið að betra væri að bæta kynlífsfræðslu í skólum því eins og staðan er í dag hefur fóstureyðingum meðal unglingsstúlkna í Kína fjölgað mjög.

Stúlkunni og barninu heilsast vel en þó hafa foreldrar stúlkunnar kært málið til lögreglunnar.

Heimild:

- http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2010/02/03/niu_ara_stulka_ol_barn/



Mynd augnabliksins

pict4035minnk.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning