Nýr leiðtogi VG á Akureyri

Andrea Hjálmsdóttir vann öruggan sigur í forvali VG á Akureýri í dag í baráttu við Baldvin H. Sigurðsson um oddvitasætið.
Edward Huijbens er öruggur í 2. sæti en mjótt er á mununum milli Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur og Baldvins H. um 3ja sætrið. Hugsanlegt er að síðustu utankjörstaðaatkvæði berist ekki fyrr en á þriðjudag þannig að spenna gæti haldist næstu daga um heildaruppröðun.

