Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Oprah lætur gott heita

<small>Spjallþáttadrottningin leitar á ný mið</small>
Spjallþáttadrottningin leitar á ný mið

Oprah Winfrey, einn ástsælasti þáttastjórnandi Bandaríkjanna og jafnvel heimsins mun setjast í helgan stein eftir að hafa birst í hart nær aldarfjórðung í sjónvarpinu með þátt sinn, The Oprah Winfrey show, en samningur hennar við ABC sjónvarpsstöðina rennur út árið 2011.

Þó er ekki alveg víst að hún hætti algerlega í sjónvarpsiðnaðinum, en margir telja að hún muni einfaldlega hætta með þáttinn á sjónvarpsstöðinni ABC og færa sig yfir á nýja stöð sem að framleiðslufyrirtækið hennar er að setja á stokk, en það ber heitir OWN, eða the Oprah Winfrey Network.

Sjálf hefur Oprah oft sagst ætla að hætta, fyrst árið 1997, en ákvað að halda þá áfram til 2002. Eftir áframhaldandi vinsældir ákvað hún svo að framlengja samningi sínum til 2011.

Oprah hefur síðustu ár malað gull og metur Forbes hana á um 2,7 milljarða dollara og er hún í 260. sæti yfir auðugustu Bandaríkjamennina.






Mynd augnabliksins

p9301036.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning