Roy Scheider látinn

Leikarinn Roy Scheider er látinn af völdum krabbameins. Hann var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í Little Rock sem er borg í Arkansas.
Frægastur er hann fyrir leik sinn í Jaws myndunum sem Steven Spielberg leikstýrði en hefur líka verið tilnefndur tvisvar til Óskarsverðlauna, fyrst árið 1971 og seinna árið 1979. Það var fyrir myndirnar The French Connection og seinna All That Jazz.


