Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

RÚV svíkur 5000 Zeitgeist aðdáendur

Zeitgeist myndirnar eru umdeildar
Zeitgeist myndirnar eru umdeildar

Yfir 5000 manns hafa skráð sig í Facebook-hóp sem vill fá kvikmyndina Zeitgeist Addendum til sýningar í Ríkissjónvarpinu.  Þegar Guðjón Heiðar Valgarðsson sem gengur fyrir hópnum talaði fyrst við innkaupastjóra Ríkissútvarpsins tók hann vel í hugmyndina og sagði hana geta gengið, en þeir ættu ekki pening til að kaupa myndina í því árferði sem er í dag.  Þegar Guðjón og hópurinn höfðu aflað tilskilinna leyfa til sýningarinnar var þó allt annað uppi á teningnum en að sýna myndina.  Innkaupastjóri Ríkisútvarpsins sagði Guðjóni að pappírarnir sem hann væri með í höndunum gætu verið komnir frá hverjum sem er og væru því ekki nægilegir til að þeir gætu sýnt myndina, Guðjón segir ástæðuna fyrir því að þeir vilji ekki sýna hana þó vera augljósa og hún hafi ekkert með réttindi að gera.

,,Ég ákvað að stofna þennan hóp því að mér fannst þessi mynd betri en ég þorði að vona og sá fyrir mér að hún gæti híft upp meðvitundarstig Íslendinga töluvert.  Ég vissi líka að þó að þetta tækist jafnvel aldrei þá myndi þetta að minnsta kosti vekja athygli á myndinni og sameina að einhverju leyti þá sem hafa kynnt sér upplýsingar sem þessar og eru tilbúnir að reyna að koma þeim á framfæri.”

Fyrir þá sem ekki þekkja til Zeitgeist myndanna þá kom fyrri myndin, Zeitgeist the Movie, út árið 2007 og olli talsverðu fjaðrafoki.  Myndin fjallar í stuttu máli um það hvernig almenningur er talinn vera mataður af lygum um hryðjuverkaárásir, trúmál og peninga en sitt sýnist hverjum um sannleiksgildi myndarinnar. Seinni myndin, Zeitgeist Addendum, kom svo út ári seinna og er einskonar hliðarskref við fyrri myndina en það er sú mynd sem hópurinn reynir að fá til sýningar í Ríkissjónvarpinu. Zeitgeist Addendum fjallar meðal annars um fjármálakerfið í Bandaríkjunum, hvernig peningar verða til úr engu og hvaða afleiðingar það hefur í för með sér. Einnig er fjallað um Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og hvernig hann sé notaður til að koma ríkjum í vandræði og brjóta þau niður. Myndirnar hafa verið umtalaðar en sumir segja að þær séu byggðar á samsæriskenningum frá upphafi til enda.

Innkaupastjóri tók vel í hugmyndina
Facebook hópurinn var mjög vinsæll allt frá upphafi en strax innan örfárra vikna voru um 2000 manns skráðir í hópinn og þótti Guðjóni þá tími til kominn að tala við Ríkisútvarpið.  Guðmundur Ingi, innkaupastjóri Ríkisútvarpsins, tók sem áður segir vel í hugmyndina til að byrja með en tjáði Guðjóni að ekki væri til peningur eins og stæði.

,,Þá sagði ég honum að mjög líklega myndum við fá að sýna myndina ókeypis. Við náðum því að hafa samband við Peter Joseph, leikstjóra og framleiðanda myndarinnar, en margir úr hópnum hjálpuðu til við að ná því og hann sendi bréf með leyfi til að sýna myndina ókeypis.  Svo sendu þeir okkur digibeta pal útgáfu af myndinni sem var sú útgáfa sem þeir á Ríkisútvarpinu báðu um” .

,,Þá sagði hann mér að þegja og skellti bara á!"
Þegar Guðjón hafði aftur samband við Ríkisútvarpið sögðust þeir aldrei hafa fengið bréfið, hann varð sér því aftur út um leyfi en fékk bréfið þá sent beint heim til sín og fór sjálfur með það til Ríkisútvarpsins.  ,,Þá var komið allt annað hljóð í menn og við áttum seinna stutt símtal þar sem hann sagði að hver sem er hefði getað skrifað þetta bréf og þetta væri ekki svona einfalt.  Ég sagði honum að láta ekki svona og að hann vissi alveg að við vorum ekkert að falsa þetta bréf en þá sagði hann mér að þegja og skellti bara á!” segir Guðjón greinilega gáttaður.

,,Svo núna vill hann meina að hann fái vanalega fullt af skjölum með hinum og þessum réttindum, og án þess að vita nákvæmlega hvað það þýðir eða hvernig við getum útvegað þau skjöl er það ennþá það sem þeir skýla sér á bakvið, og þá staðreynd að þetta hefur ekki verið sýnt annars staðar, sem er auðvitað augljós ástæða fyrir og hefur ekkert með réttindi að gera”.

Guðjón bendir á að Ríkisútvarpið sé ríkismiðill og eigi sem slíkur að þjóna öllum landsmönnum. Hann segir afnotagjöldin hafa verið notuð í misgáfulega hluti í gegnum tíðina og að vilji 5000 manns sé nægilegur til þess að réttlæta birtingu myndarinnar, hópurinn sé hvergi nærri dottinn af baki og að hann haldi ótrauður áfram að reyna að fá myndina birta.

Myndina má nálgast hér

 



Mynd augnabliksins

20110212-img_7590-2.jpg

Könnun

Ætlar þú til útlanda í sumar?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning