Styrktartónleikar

Að sögn Eiríks Stephensen skólastjóra tónlistarskóla Eyjafjarðar verður dagskrá tónleikanna metnaðarfull og skemmtileg.Meðal atriða á efnisskrá auk nemenda skólans er: Jasshljómsveit kennara ásamt bróður Garðars Birgi Karlssyni gítarleikara , Vilhjálmur Ingi Sigurðarson trompetleikari sem er gamall nemandi við skólann og núverandi kennari, tríó kennara og skólakór Hrafnagilsskóla. Að styrktarsjóðnum standa fjölskylda Garðars, Eyjafjarðarsveit ásamt Tónlistarskóla Eyjafjarðar, sjóðnum er ætlað að styrkja tónlistarfólk í Eyjafjarðarsveit. Garðar Karlsson var um langan tíma einn atorkusamasti tónlistaruppalandi og kennari í Eyjafjarðarsveit.



