Tónleikar í Oddeyrarskóla
"Á tónleikunum verðum ekki bara við hljómsveitin, heldur fáum við aðstoð frá auka gítarleikara og hljómborðsleikara. Siggi Ingimars kemur svo og syngur nokkur lög með okkur. Svo vona ég að það verði líka nokkrir áhorfendur" segir Ármann og bendir á það að frítt er inn á tónleikana.
"Hljómsveitin er frá Akureyri. Nema ég, ég er Mývetningur. Reyndar eru ekki allir meðlimir Akureyringar. En hljómsveitin er frá Hjálpræðishernum á Akureyri og aðallega skipuð meðlimum úr unglingastarfinu þar."
Haraldur, gítarleikari hljómsveitarinnar, hafði lítið að bæta við þetta en sagði að búast megi við skemmtilegu kvöldi.
"Með skemmtilegu fólki", bætir Ármann við að lokum.


