Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Úrslit úr forvali VG ekki kunn nærri strax?

Verður Baldvin H. Sigurðsson enn oddviti VG á Akureyri að loknu forvali? Línur skýrast brátt.
Verður Baldvin H. Sigurðsson enn oddviti VG á Akureyri að loknu forvali? Línur skýrast brátt.

Forval Vinstri grænna hófst klukkan tíu á Akureyri í dag og stendur til kl. 18. Eigi að síður verða úrslit kosninganna ekki ljós fyrr en á þriðjudag eða miðvikudag að sögn kunnugra.

Ástæðan er að utankjörstaðaaðkvæði hefur mátt setja í póst allt fram til gærdagsins og þar sem það getur tekið póst nokkurn tíma að ferðast gætu endanleg úrslit ekki ráðist fyrr en um miðja næstu viku.

-BÞ

Athugasemd kl. 12.36: Því er við þetta að bæta að ekki verður beðið með að birta úrslit hjá VG á Akureyri nema niðurstaðan sé afar tvísýn. Jafnvel er hugsanlegt að staðan í forvalinu verðu birt í kvöld um klukkan 20, burtséð frá þeim möguleika að utankjörstaðaatkvæði breyti niðurstöðunni. Þetta staðfesti Jón Erlendsson í samtali við Landpóstinn í dag, en jón ber meðal annarra ábyrgð á framkvæmd kosningarinnar.

-BÞ



Mynd augnabliksins

p9301028.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning