Pistlar - þriðjudagur 26.janúar 2010 17:37 - Sunna María Jónasdóttir - Lestrar 89 -
Athugasemdir (3)

Mynd fengin að láni frá arnfirdingur.is
Ég er utanbæjarmanneskja hérna á Akureyri og bara búin að búa hérna í rúmlega hálft ár. Eitt af því fyrsta
sem ég heyrði talað um hérna, voru svokölluð Vaðlaheiðagöng. Fyrst hugsaði ég, já það er örugglega mjög
jákvætt og gott fyrir Akureyringa og nærsveitamenn. Þegar ég svo ók yfir Víkurskarðið fóru að renna á mig tvær
grímur, þar sem að ég gat nú ekki séð neitt athugavert við þennan veg, malbikaður og bara nokkuð góður.
Þá fór fólk að segja mér hvað það væri nú vont að keyra þarna að vetri til í hálku og snjó, og
já ég get alveg verið sammála því, en það er alls staðar vont að keyra í hálku og snjó. Ástæða þess
að ég rita þessi orð, er sú að ég er hreinræktaður Vestfirðingur, nánar tiltekið af sunnanverðum Vestfjörðum. Ég er
alin upp við slæma vegi og þegar ég skrifa slæma vegi, þá meina ég slæma vegi. Hef ekki ennþá fundið álíka vegi
hér fyrir norðan. Langir kaflar á leiðinni vestur eru malarvegir og háar heiðar, sem erfitt er að aka yfir vetrartímann. Á tímabili í
haust stóð til að skerða snjómokstur og fækka ferðum Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Þegar það stóð til, sá fólk
fram á það að geta einungis farið ferða sinna þrjá daga í viku. Enn og aftur þegar þessi umræða var í gangi,
þá hugsaði ég um Vaðlaheiðagöngin, hvort að það væri virkilega þörf á þeim? Eins og ástandið er í
dag er auðvitað búið að fresta öllum framkvæmdum í vegagerð eða gangnagerð.
Ég geri mér grein fyrir því að það búa færri fyrir vestan, en samgöngur eru fólkinu þar alveg jafn mikilvægar og
öðrum. Síðustu ár hefur verið mikil fólksfækkun á Vestfjörðum og get ég ekki að því að gert að hugsa
með mér, hvort að það stafi af því, að á ýmsum sviðum eins og í vegagerð eru Vestfirðingar mörgum árum ef ekki
áratugum á eftir öðrum landshlutum. Ég hugsa á svipuðum nótum þegar ég ek yfir Öxnadalsheiðina niður í
Skagafjörð og horfi á "gamla veginn" sem er malbikaður, þá átta ég mig á því hversu langt á eftir Vestfirðingar
eru.
Ekki misskilja þessi skrif mín á þann hátt að ég sé á móti Vaðlaheiðagöngum eða öðrum
vegaúrbótum, því það er ég alls ekki, heldur finnst mér bara vera þörf á forgangsröðun í vegaframkvæmdum. Og
þá meina ég að það má ekki bara gleyma sumum landshlutum, þó að það búi fáir þar miðað við aðra
staði!