Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Vann í lottó en er kominn aftur á atvinnuleysisbætur

Michael Carroll
Michael Carroll
Michael Carroll vann í breska lottóinu fyrir 8 árum, hann vann 9.7 milljónir punda eða tæpa tvo milljarða íslenskar krónur. Hann var aðeins 18 ára gamall þegar hann vann. Hann er hins vegar núna búinn að eyða öllum peningunum sem hann vann og kominn á atvinnuleysisbætur. Áður en hann vann í lottóinu var hann sorphirðumaður.

Michael Carroll segist hafa eytt öllum peningunum sem hann vann í meðal annars í vændiskonur og fíkniefni. Fram kemur á www.dailymail.co.uk að hann hafi einnig eytt í fjárhættuspil, skartgripi, bíla, alls kyns veislur, bíla og raftæki.

Núna fær hann hins vegar 42 pund á viku sem eru 8.400 kr. og segist bara vera ánægður með það. Hann hélt stórar og flottar veislur fyrir vini sína þar sem hann bauð upp á fíkniefni og áfengi. Á þessum tíma gafst barnsmóðir hans upp á honum og yfirgaf hann. Þá hélt hann bara áfram í sama lífstíl, nema að þá sneri hann sér alfarið að vændiskonum.

Michael varð þekktur fyrir húðflúr og stóra og mikla gullskartgripi. Sagði hann að stórum hluta af gullskartinu hans hefði verið stolið, en að hann hefði verið fljótur að kaupa sér allt nýtt.

Nú þegar allur peningurinn er horfinn segist hann vona að hann geti fengið gamla starfið sitt aftur, þar sem hann var sáttur við það áður en hann vann í lottó.


Mynd augnabliksins

img_8673.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning