Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

From Paris with Love

Fyrr í kvöld skellti blaðamaður sér í Borgarbíó að sjá myndina From Paris with Love með John Travolta og Jonathan Rhys Meyers í aðalhlutverkum. Myndin er byggð á sögu eftir Luc Besson en handritið skrifaði Adi Hasak. Myndin fjallar um James Reece (Rhys Meyers), ungan mann sem starfar við bandaríska sendiráðið í París en hefur þá hliðarvinnu að vera lágt settur njósnari í bandarísku leyniþjónustunni, CIA. Hann dreymir um að hækka í tign innan leyniþjónustunnar og grípur því tækifærið þegar það býðst, til að starfa með Charlie Wax (Travolta), sem er óútreiknanlegur og skotglaður brandarakarl sem á svör við öllu.

Eftir fyrstu tíu mínúturnar fór blaðamaður að efast um að hefði verið góð hugmynd að fara á þessa mynd. Byrjunin var frekar hefðbundin kynning á persónunni Reece og hans högum en virkaði svolítið slöpp. Sem betur fór breyttist allt til hins betra þegar persónan Charlie Wax kom til sögunnar. Dularfullur og kjaftaglaður töffari á miðjum aldri, alger andstæða jakkafatagæjans Reece, en saman mynda þeir óborganlegt teymi.

Bæði Travolta og Rhys Meyers koma sínum hlutverkum frá sér fullkomlega þó svo að sá síðarnefndi falli örlítið í skuggann á stórleikaranum Travolta. Ekki er heldur hægt að setja út á leik Kasia Smutniak sem fer með hlutverk Caroline, unnustu Reece.

Handritið mætti vera betra á köflum en húmorinn og hasarinn í myndinni bæta það upp ásamt góðri leikstjórn Pierre Morel (Taken) og þegar upp er staðið er myndin frábær afþreying.

Blaðamaður mælir því hiklaust með henni


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Mynd augnabliksins

img_4699.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning