Göngudeild SÁÁ á Akureyri ekki meir!

Um 2.000 manns sækja þjónustuna sem hefur verið í boði á Akureyri og hefur fólk áhyggjur af því að með því að loka göngudeildinni á Akureyri þá hafi fólk ekki efni á því að fara alla leiðina suður til að fá þjónustuna sem að þau þurfa. Fólk er að koma til Akureyrar frá Húsavík, Sauðárkróks, Ólafsvík og Siglufirði til að þess að fara á fund. Og mjög ólíklegt að fólk fari að fara suður á fund þegar að flugið fram og til baka er á um 30.000 krónum.
Hjá SÁÁ hefur verið tekin sú ákvörðun að það á ekki að skera niður hjá starfsemi Vogs eða eftirmiðstöðvum, en eins og hjá unglingadeild og göngudeildum verður skorið niður.
Dagskrárstjóri göngudeildar Akureyrar Anna Hildur Guðmundsdóttir hættir 1. júní næstkomandi.
Meðal þess sem að göngudeildin kemur að er eftirfylgni fyrir konur sem hafa lokið meðferð, eftirfylgni fyrir karla sem hafa lokið meðferð á Staðarfelli, alla virka daga þá eru fundir, stuðningshópar, aðstandendum áfengissjúkra sem geta fengið aðstoð og svo er líka hugsað um viðtöl og forvarnarstarf. En öll þessi vinna verður hætt núna í vor svo að ekki boðar þetta gott og spurningin er hvert á fólk sem á litla peninga að leita sem þarf á aðstoð sem þessari að halda?
Heimild: Fréttablaðið, síða 4


