Minningartónleikar í Ketilhúsinu
Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var hún nýkomin til London í framhaldsnám þegar hún lést af slysförum í febrúar 1972.
Aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar stofnuðu minningarsjóð til að styrkja
efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms, ári eftir að hún lést. Tónleikar eru helsti vettvangur til
að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta. Á tónleikunum koma fram nemendur úr
Tónlistaskóla Akureyrar.
Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum í sjóðinn.


