Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Öruggara líf fyrir sykursjúka

Mynd tekin af vef BBC NEWS
Mynd tekin af vef BBC NEWS
Visindamenn í Cambridge hafa þróað tækni sem á að koma í veg fyrir að blóðsykur falli hjá börnum sem haldin eru sykursýki týpu 1, þannig að ástand þeirra verði lífshættulegt. Vísindamennirnir hafa sýnt fram á að hægt er að notast við gerfibris til hafa stjórn á blóðsykri hjá börnum sem haldin eru sykursýki týpu 1. Tilraunir sýndu að með því að nota bæði skynjara, sem mæla glúkósa í blóði og pumpu sem dælir insúlíni inn í líkamann getur haldið blóðsykrunum í jafnvægi yfir nótt. Sérfræðingar á þessi sviði segja uppgötvunina vera stórt stökk fram á við en sykursýki týpa 1 er lífshættulegur sjúkómur sem veldur því að brisið framleiðir ekki insúlín eins og það á að gera. Prófanir voru gerðar á börnum í hinum ýmsu aðstæðum eins og t.d. yfir nótt þar sem börnin höfðu þá borðað stóra máltið rétt fyrir svefn en það getur leitt til blóðsykursfalls. Þessi nýja tækni gerir börnum kleift að þurfa ekki lengur að óttast lífshættulegt blóðsykursfall í svefni, jafnvel þó svo að þau neyti stórrar máltíðar stuttu fyrir svefn.

Sigrún Ásdís Sigurðardóttir

Heimild: http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/8498993.stm



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Mynd augnabliksins

img_8696.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning