Landpósturinn

Landpóstur - Fréttavefur Fjölmiðlanema

Fréttir

Tilviljun eða hvað...?

Sterk skilaboð - en eru allir jafnir?
Sterk skilaboð - en eru allir jafnir?

Ég ætla í upphafi að varpa fram tveimur spurningum:

1)  Veldur tilviljun því að útlensk kona, nánar tiltekið suðuramerísk kona,  muni njóta þess vafasama heiðurs í seinni tíð að verða fyrst dæmd fyrir vændi hér á landi, eða ætti ég að segja hórmang?

2) Veldur tilviljun því að nokkrir útlendingar frá Litháen hafi fyrstir manna verið dæmdir hér á landi fyrir mansal?

Kannski er rétt að taka góðan tíma til að velta svörunum fyrir  sér. Kannski er líka rétt að velta fyrir sér hvers vegna blaðamenn hér á landi hafa undanfarið verið dæmdir til fésekta fyrir það eitt að birta ummæli annarra um íslenskan aðila sem óyggjandi hefur tengst starfsemi þar sem naktar konur koma við sögu.

Það eru sennilega ekki miklar líkur á að suðurameríska konan eða litháensku mansalsmennirnir hafi getu til að spyrna við fótum með því að hjóla í íslenska fjölmiðla og íslenska dómskerfið. Það eru sennilega ekki miklar líkur á að fólk upprunnið frá Suður-Ameríku og Litháen eigi sér yfir höfuð marga málsvara hér á landi.

Stærsta spurningin er eftir. Hún er svona: Getur verið að vilji blönku en krúttlegu smáþjóðarinnar okkar til að hefja rannsóknir og láta kné fylgja kviði sé mismikill eftir uppruna, húðlit og framandleika þeirra sem liggja undir grun? Ha?



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Mynd augnabliksins

p9301053.jpg

Könnun

Ætlar þú að lesa Rannsóknarskýrsluna?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir

Teljari

Í dag: 8
Samtals: 171887

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning