Úrslit úr forvali VG ekki kunn nærri strax?

Forval Vinstri grænna hófst klukkan tíu á Akureyri í dag og stendur til kl. 18. Eigi að síður verða úrslit kosninganna ekki ljós fyrr en á þriðjudag eða miðvikudag að sögn kunnugra.
Ástæðan er að utankjörstaðaaðkvæði hefur mátt setja í póst allt fram til gærdagsins og þar sem það getur tekið póst nokkurn tíma að ferðast gætu endanleg úrslit ekki ráðist fyrr en um miðja næstu viku.
-BÞ
Athugasemd kl. 12.36: Því er við þetta að bæta að ekki verður beðið með að birta úrslit hjá VG á Akureyri nema niðurstaðan sé afar tvísýn. Jafnvel er hugsanlegt að staðan í forvalinu verðu birt í kvöld um klukkan 20, burtséð frá þeim möguleika að utankjörstaðaatkvæði breyti niðurstöðunni. Þetta staðfesti Jón Erlendsson í samtali við Landpóstinn í dag, en jón ber meðal annarra ábyrgð á framkvæmd kosningarinnar.
-BÞ


